ByLOGSTRUP DÖNSK ÚTIELDHÚS

0 kr
VSK

ÞESSI VARA ER EKKI TIL Á LAGER OG FÆST EINGÖNGU SÉRPÖNTUÐ.  AFGREIÐSLUTÍMI 3-4 VIKUR

ByLogstrup útieldhúsið er fáanlegt í þremur stærðum með einum, tveimur eða þremur skápum. Allt útieldhúsið er úr veðurþolnu lituðu efni sem þolir að vera úti í alls kyns veðrum, líka íslensku veðri, og hægt er að geyma eldunaráhöld á öruggan og þurran hátt í þéttum skápum með snúningslokun. Grind skápana er úr ryðfríu efni.

VERÐ

Kr. 279.000 - Grillskápur, breidd: 77.5 cm (lægri)
Kr. 319.000 - 1 Module, breidd: 77.5 cm
Kr. 549.000 - 2 Module, breidd: 153,5 cm
Kr. 699.000 - 2 Module með vaski, breidd: 153,5 cm
Kr. 749.000 - 3 Module, breidd: 230 cm
Kr. 899.000 - 3 Module með vaski, breidd: 230 cm

Innbyggt ítalskt FOGHER FGA 500 FO útigrill er einnig fáanlegt. Kr. 499.000

Hillur eru í öllum skápum fyrir utan einingu með innbyggðum vaski. Hægt er að stilla hæð á hillum eftir þörfum.

Hægt er að velja um 6 liti: Jet Black, Olive Green, Night Blue, Eucalyptus, Antracite grár og Okre Red.

Borðplatan er úr hvítum Kerrock® sem er samsett plata sem þolir hita og er rispu- og skurðþolin, auðvelt að þrífa og viðhalda. Hægt er að fá svarta borðplötu gegn auka greiðslu.

Öll ByLogstrup útieldhúsin eru með hjólum, þannig að  auðveldlega er hægt að hreyfa þau til. Einnig er auðvelt að setja saman nokkrar einingar eftir þörfum.

Það eina sem þarf að gera til að halda útieldhúsinu hreinu, er hreinn og blautur klútur og þá er það tilbúið til notkunar á hvaða árstíð sem er.

Hönnunin er mínimalísk með „mjúku“ útliti og ávölum brúnum. Þar sem eldhúsið getur enst í áratugi, þá verður útlitið líka að vera álíka einfalt og tímalaust.

ByLogstrup útieldhúsin er dönsk hönnun framleidd í Danmörku. Eldhúsin koma samsett og er 3-4 vikna afgreiðslutími.

Tveggja ára ábyrgð er á útieldhúsinu og fjögurra ára framlengd ábyrgð á hliðum, hurðum og borðplötu. Þessi ábyrgð nær yfir óbrotið yfirborð.

Allar upplýsingar eru veittar í 699 2000 og jax@jax.is

STÆRÐ OG ÞYNGD
Einn skápur: B: 77.5 | D: 62 | H: 90.5 cm, Þyngd 55kg
Tveir skápar: B: 153.5 | D: 62 | H: 90,5 cm, Þyngd 103Kg
Þrír skápar: B: 230 | D: 62 | H:90,5 cm, Þyngd 155kg
Grill skápur: B: 77.5 | D: 62 | H: 72 cm, Þyngd 48kg

 

Fallegt og rómantískt

Fallegt og rómantískt

Það er ekkert eins vinarlegt og að sitja við viðareld á síðkvöldi. Búbblan passar hvar sem er og skapar skemmtilega rómantíska stemningu.

Snarkið í eldinum undirstrikar stemminguna og Búbblan rammar inn rómantíkina við að sitja úti og njóta lífsins.

Einfaldleiki í hönnun og smekkleg framsetning eru einkenni Focus, sem hafa í fjölda ára hannað og framleitt úti-eldstæði og arna fyrir heimili og hótel.

Búbblan býður upp á fjölmarga möguleika þegar kemur að skipulagningu á garðinum. Ein og sér er hún falleg á síðkvöldi, eða nokkrar saman sem ramma inn umhverfið.

Christophe Ployé

Christophe Ployé

Í yfir 15 ár var Christophe Ployé einn nánasti samstarfsmaður stofnanda FOCUS, Dominique Imbert

Í dag leiðir Christophe hönnunarstarf FOCUS og vinnur að því að tryggja áframhaldandi þróun og nýsköpun.

Christophe, útskrifaðist úr tæknihönnun meðfram námi í vélaverkfræði, frá European Institute of Design, Toulon í Frakklandi.

Heimasíða Focus:

https://www.focus-fireplaces.com/

Sterk og falleg

Sterk og falleg

Búbblan er gerð úr stáli sem er húðað með sérstöku verjandi efni sem tryggir fallegt útlit og endingu.

Búbblan er 70cm í þvermál, um 50 Kg og með tveimur sterkum gúmmíhjólum sem gerir það létt að færana til.

Sérstök "vagga" er undir viðarkubbana, sem auðveldar þrif og viðhald.

ATHUGIÐ; BÚBBLAN SKILUR EKKI EFTIR SIG FAR Á PÖLLUM EÐA STÉTTUM. HÚN ER 5MM FRÁ YFIRBORÐI AUK ÞESS SEM NÁNAST ENGINN HITI ER FYRIR NEÐAN ELD-VÖGGUNA!

Smelltu hér fyrir spurt og svarað um Búbbluna

GULL VERÐLAUN

GULL VERÐLAUN

Focus fékk hin virtu Þýsku hönnunarverðlaun 2022, fyrir Búbbluna. En hún þótti skara framúr fyrir nýstískulega og frumlega hönnun.

Þýska hönnunarráðið og þýska efnahags- og orkumálaráðuneytið eru í forsvari fyrir verðlaunin sem heiðra bestu verkefnin á hverju ári.

Ábyrgð og viðhald

Ábyrgð og viðhald

Búbblan er í ábyrgð í tvö ár frá afhendingu. Ábyrgðin nær yfir galla í hönnun, bygginga- og framleiðslugalla.

Ábyrgð tekur ekki til skemmda eftir að notkun hefur hafist eða til slysa sem skapast af notkun.

Ytra byrði er undanskilið ábyrgð.

Létt viðhald á ytra byrði gæti þurft á líftíma Búbblunnar og til að tryggja bestan árangur og skal eingöngu nota Focus málningarspray, sem fylgir.

Hér má sjá hvernig Búbblunni er viðhaldið:

https://www.youtube.com/watch?v=ulCjsEieFAo

Hér eru stærðir

Hér eru stærðir

Hún lætur ekki mikið yfir sér, en hún er samt um 50 kíló, 70cm í þvermál og 63 cm á hæð.

Á myndinni hér við hliðina sérðu að hún snertir ekki flötinn sem hún hvílir á því hjólin tryggja að hún haldi alltaf 5mm fjarlægð frá jörðu.

Viðarkubbarnir og eldurinn er einungis efst í vöggunni og því hitnar hún ekki að neðan.