GLOW LÍNAN - Sameinar tímalausa lýsingu og hita. Fæst sem sett með 3 eða 5 einingum.
GLOW-línan er fjölhæfasta vörulína Heatsail til þessa. Hægt er að hengja hverja hitaeiningu upp fyrir sig eða velja úr sérstökum loftfestingum sem gera kleift að raða þeim í hring eða beina línu. Lengdu fallegustu stundir dagsins og skapaðu upplifun sem lifir lengur.
Njóttu þess að sitja úti með fjölskyldu og vinum, dag eftir dag og langt fram á kvöld, jafnvel þegar kólnar í veðri. Njóttu umhverfisins, samverunnar og augnablikanna sem verða til undir berum himni. GLOW fæst í settum með 3 eða 5 einingum. GLOW-línan er hönnuð og framleidd í Belgíu.
Ryðfrítt og veðurþolið
GLOW-línan er framleidd úr ryðfríu stáli og hentar til notkunar á yfirbyggðum útisvæðum.
Lítil orkunotkun og engin bein CO₂-Llosun
GLOW notar minni orku en hefðbundnir gashitarar. Þar sem GLOW er 100% rafknúið kerfi verður engin bein CO₂-losun við notkun og aflnotkun er aðeins 640 W á hverja einingu.
Lítið viðhald
Með mjög skilvirkum og endingargóðum keramískum hitaeiningum og vönduðum efnum er GLOW-línan nánast viðhaldsfrí.
Engin rauðglóandi birta
GLOW veitir þægilega og notalega geislahlýju án þess að hitaeiningarnar gefi frá sér rauðan bjarma.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
Gerð: Hönnunarljós með innbyggðum rafmagnshitara
Uppsetning: Loftfesting / hangandi einingar
Fjöldi eininga: Fæst í 3 eða 5 eininga settum
Afl á hverja einingu: 640 W
Hitun: Keramísk hitaeining / geislahitun
Rauður glampi: Nei – hitar án rauðglóandi hitaeininga
Orkugjafi: 100% rafmagn
Efni: Ryðfrítt, duftlakkað stál
Litur: Standard litur Midnight
Varnarflokkur: IP43
Notkun: Ætlað fyrir yfirbyggð útisvæði, t.d. verandir, pergólur og yfirbyggða palla
Stýring: Ljós og hiti eru stýrð hvort í sínu lagi
Hitastillingar: Tvær hitastillingar
Snjallstýring: App-/snjallsímastýring í boði sem aukabúnaður
Upphenging: Hægt að hengja einingar sjálfstætt eða nota loftmódúl fyrir beina línu eða hring
Viðhald: Mjög lítið viðhald samkvæmt framleiðanda
Hönnun og framleiðsla: Belgía
Vottanir: CE- og IEC-vottað og SGS-skráð samkvæmt UL- og CAN/CSA-stöðlum
Leiðarvísir um notkun og uppsetningu