




HANNESSON
Þessi stóll er handunnin á Íslandi. Hann er eingöngu framleiddur eftir pöntun. Framleiðslutími er 7 til 10 dagar frá pöntun.
Þessi stóll er til sýnis í sýningarsal okkar.
HANNESSON frá JAX HANDVERK er hannaður fyrir þá sem vilja geta setið í ró og næði með góða bók og góðan drykk á sóladegi. Hönnun hans miðast við þykkar og mjúkar sessur. Það er létt að standa upp úr stólnum og setan er djúp.
Þessi stóll vill vera úti allt árið um kring. Hann er sterkur, endingargóður og traustur og þannig þolir hann allar íslenskar árstíðir. Hægt er að fá fótskemil fyrir þennan stól.
Stóllinn eru framleiddur eingöngu fyrir þá sem vilja eiga vandaða og handunna hluti og hver stóll er sérstaklega settur saman fyrir nýan eiganda. Stóllinn kemur í tveimur viðartegundum: lerki og eik. Stóllinn er ekki lagervara.
Umhirða og viðhald
Flestar viðartegundir þarf að verja með einhverjum hætti. Eik þarf að gefa olíu og mögulega lit ef ekki er óskað eftir að eikin gráni. Lerki má gefa olíu og það má líka sleppa því. Bæði lerki og eik (og reyndar allur viður) geta sprungið og undið sig og það er fullkomlega eðlilegt. Viður sem geymdur er úti drekkur í sig vatn yfir veturinn og springur mögulega í hitabreytingum.
Við mælum með eins mikilli olíu og kostur er á eikar-húsgögn og lituð olía er líka góð ef slíkt passar. Við mælum ekki með olíu sem skilur eftir sig húð. Slíkt kallar á mikla vinnu við umhirðu síðar. Við veitum ráðgjöf til viðskiptavina byggt á þeirra óskum, við afhendingu stóla.
Viðartegundir
LERKI, er sterkt og stökt efni sem hefur mikla endingu, þyngd og styrk. Margir velja að bera jafnvel ekkert á lerkið og leyfa því að grána. Olía er alltaf góð fyrir við og tryggir langa endingu. Ending lerkis er mælt í tugum ára ef því er vel viðhaldið.
EIK, er klassískur viður í húsgögn, bæði inni og úti. Gríðarlega sterkur viður en um leið mýkri en t.d. lerki. Ending eikar er á pari við við lerki og hefur fallega áferð. Jafnan er talið að eik sé það lang besta sem hægt er að hafa í húsgögnum.
Afhending
Stóllinn er sérsmíðaður eftir pöntun. Hann er afhentur ca 7 til 10 dögum eftir staðfestingu pöntunar.
ATH: Stóllinn er afhentur ómálaður og tilbúinn til litunar og olíu. Eikarstólar eru afhentir með einni umferð af glærri olíu. Stóllinn má vera úti allt árið um kring en eikarstólar þurfa að fá olíu áferð. Mælt er með amk einni olíuáferð á ári til að tryggja endingu. Stóllinn gránar ef hann er ekki litaður.
Sessur fylgja ekki. Hægt er að fá sessur eins og sýndar á myndinni eða aðrar eftir smekk í ýmsum litum og gerðum. Við mælum sérstaklega með sessum frá GÁ Húsgögnum í Ármúla 19 - www.gahusgogn.is. GÁ Húsgögn hafa upplýsingar um stærð og gerð stólsins.
Með hverjum stól fylgja 8 sólardagar og óendanleg hamingja þeim til handa sem í honum sitja.
*Myndir á síðunni sýna eikarstól sem hefur verið olíuborinn. Sessur fylgja ekki og eru ekki hluti af verðinu á stólnum.
Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur. Við munum hafa samband við þig eins fljótt og auðið er, innan 24 klukkustunda á virkum dögum.
Hafðu samband