Verkefnin okkar

Nokkur af okkar verkefnum

Síðan 2017 höfum við tekið þátt í að skapa umhverfi hjá fólki og fyrirtækjum um allt land. Húsgögnin okkar eru ekki bara sterk, þau eru þung og byggð til að þola allar íslenskar árstíðir.  Við erum stolt af því að geta boðið upp upp á einstaka vöru sem endist áratugi.

Hér má sjá úrval nokkur þeirra verkefna sem JAX HANDVERK hefur komið að og verið treyst fyrir, allt frá handsmíðuðum útihúsgögnum og sérhönnuðum útieldhúsum til saunaklefa og heildarlausna fyrir útirými.

Hvert verkefni er unnið í nánu samstarfi við viðskiptavininn þar sem áhersla er lögð á efnisgæði, endingargóða hönnun og heildarsvip sem fellur náttúrulega að umhverfinu.

Við trúum því að góð hönnun sjáist í smáatriðunum – og að handverk með karakter standist tímans tönn. Við erum stolt af verkefnum okkar og að virtustu arkitektar, hönnuðir, fjölskyldur og fyrirtæki velji okkur til að koma að þeirra verkefnum.

Skoðaðu verkefnin okkar og fáðu innblástur fyrir þitt næsta rými. Listinn er ekki tæmandi.

Þorparinn, 4,0 metrar.  60mm sérpöntuð eik.  Höfuðstöðvar Icelandair.

Þorparinn, 3,0 metrar.  Sérunnið Lerki. Verkefni: áningarstæði á Suðurlandi. Viðskiptavinur: Vegagerðin.

Stóri Sterki stólar.  Sérunnið Lerki. Verkefni: Hótel Jökulsárlón.

Þorparinn og Stóri Sterki stólar.  Sérunnið Lerki. Verkefni: Hótel Flatey
Hollywood stólar við eldstæði.  Sérunnið Lerki. Verkefni: Heilsulindin Hvammsvík.