Olio Nitti ólífuolía er loksins komin aftur, milliliðalaust frá fjölskyldufyrirtækinu Nittibræðra í Bari á suður Ítalíu. Fjölskyldan framleiðir olíuna á sínu eigin landi í Puglia á Ítalíu, en miðjarðarhafsloftslagið býður upp á fullkomnar aðstæður fyrir ólífuræktun. Þessi litla fjölskylda vinnur olíuna með höndunum einum saman og engar vélar eða færibönd koma nálægt framleiðslunni. Ítalskara verður það hreinlega ekki.
Olio Nitti ólífuolían kemur eins og ítalarnir vilja hafa olíu; ósíuð, laus við aukefni, full af orku og nærandi náttúruefnum sem líkaminn elskar. Olían fæst eingöngu hjá JAX HANDVERK