





BÖSTE STÓLL OG FÓTSKEMILL - Tekk og ryðfrítt stál
379.000 kr
BÖSTE STÓLL OG FÓTSKEMILL - Sérpöntun
Böste stóllinn er nútímaleg, skandinavísk túlkun á hinum klassíska Adirondack stól.
Hönnun stólsins vísar í mjúkar strendur, harðar klettasyllur, gras á milli tánna, sundlaugarbarminn eða rúmgóða verönd. Áhersla er á endingargóða, fágaða útgáfu úr ryðfríu stáli og endingargóðu FSC-merktu tekki. Líkt og sjóskorinn steinn er hægindastóllinn með ávalar brúnir og mjúka lögun. Stóllinn og fótskemillinn fá á sig fallegan gráan lit með tímanum.
Böste má standa úti allt árið um kring og verður fallega silfurgrár með tímanum. Armarnir eru nógu breiðir til að nýtast sem lítil borð fyrir vínglas, hnetuskál eða bók.

Stefan Borselius - Hönnuður
Stefan Borselius fæddist í Höllviken, á suðvesturodda Svíþjóðar. Hann hefur lært hönnun og húsgagnasmíði í samtals ellefu ár. Fyrst lærði hann trésmíði, rétt eins og forfeður hans, sem voru lærðir skápasmiðir. Þá tók hann meðal annars BS-gráðu í húsgagnahönnun við Malmstenskolan og meistaragráðu frá Konstfack í Stokkhólmi.
Árið 2002 stofnaði hann eigið hönnunarfyrirtæki og síðan þá hefur hann einbeitt sér að húsgögnum og innanhússhönnun – allt frá stólum, lömpum og til teppa og vefnaðarvöru. Borselius hefur verið í samstarfi við nokkur af virtustu hönnunar- og húsgagnafyrirtækjum Skandinavíu.
Árið 2002 stofnaði hann eigið hönnunarfyrirtæki og síðan þá hefur hann einbeitt sér að húsgögnum og innanhússhönnun – allt frá stólum, lömpum og til teppa og vefnaðarvöru. Borselius hefur verið í samstarfi við nokkur af virtustu hönnunar- og húsgagnafyrirtækjum Skandinavíu.
Stefan Borselius hefur skapað sér gott orð fyrir nýstárlegar lausnir fyrir efni, form og virkni. Hann hefur unnið til fjölda hönnunarverðlauna og viðurkenninga og hafa sumar af vörum verið til sýnis í Þjóðminjasafni Stokkhólms.
Stærðir
Stóll
Stærðir
Stóll
Fótskemill
Breidd: 43.5 cm
Hæð: 30 cm
Dýpt: 40 cm
Þyngd: 6 kg
Breidd: 43.5 cm
Hæð: 30 cm
Dýpt: 40 cm
Þyngd: 6 kg
ATH: Stóllinn og fótskemill fást eingögnu sérpantaðir

BÖSTE STÓLL OG FÓTSKEMILL - Tekk og ryðfrítt stál
Stóll
379.000 kr
Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur. Við munum hafa samband við þig eins fljótt og auðið er, innan 24 klukkustunda á virkum dögum.
Hafðu samband