LITLI ÞORPARINN

109.000 kr
VSK
Stærð:
180x70x32
Litur - Efni:
Hvít fura
Græn fura
Lerki

LITLI ÞORPARINN byggir á sömu hönnun og stóri bróðir: Þorparinn, sem er vinsælasta borð JAX HANDVERK. 

Þetta er hannað, þannig að hægt sé að hafa húsgögnin saman á á einu svæði og þau kallast öll á, bæði borðin, bekkirnir og stólar.

Staðalútgáfa borðsins er 180x70x32 cm. Borðið er unnið úr húsþurrkaðri ljósri eða grænni furu og sett saman með sterkum ryðfríum stálskrúfum. Einnig er hægt að fá borðið úr lerki.

Hvert borð er sérstaklega gert fyrir hvern nýjan eiganda og tekur smíðin venjulega u.þ.b. 7 til 10 daga í framleiðslu. 

Stundum eru aðstæður þannig að mismunandi lengd, eða breidd passar betur en önnur og því getur nýr eigandi fengið borðið sitt eins og best hentar fyrir heimili hans eða sumarhús.

ATH: Borðið er afhent ómálað og tilbúið til litunar og olíu.  Það má vera úti allt árið um kring en mælt er með amk einni glærri olíuáferð á ári til að tryggja endingu.

Stólar fylgja ekki en fáanlegir einnig frá JAX HANDVERK.

Með hverju borði fylgja 6 sólardagar og óendanleg hamingja þeim til handa sem við borðið nýtur.

Translation missing: en.general.back_to_top