RÓMEO

0 kr 389.000 kr
VSK
Stærð:
220x90
260x90
300x100
Litur - Efni:
Lerki
Origon Pine

RÓMEO er einstaklega "elegant" og hefur hreinar og fallegar línur.  Þetta er nýtt borð frá JAX HANDVERK. Tveir bekkir fylgja auðvitað með. 

Staðalútgáfa borðanna er 2,20m x 90 cm og bekkirnir eru jafn langir og ca 40cm breiðir. Borðið eru unnið úr húsþurrkaðri ljósri eða grænni furu eða lerki.  Það er nýðsterkt og þolir vel að standa úti allt árið um kring. Furuborðið með bekkjum er um 70-90kg.  Lerkiborð er 100-150kg með bekkjum.  Það þarf mikið til að hreyfa við þessum borðum.

Útiborðin eru framleidd fyrir þá sem vilja eiga vandaða og handunna hluti. Hvert sett er sérstaklega gert fyrir hvern nýjan eiganda og tekur smíðin venjulega u.þ.b. 7 til 10 daga í framleiðslu. 

Stundum eru aðstæður þannig að mismunandi lengd, eða breidd passar betur en önnur og því getur nýr eigandi fengið borðið sitt eins og best hentar fyrir heimili hans eða sumarhús.

ATH: Útiborðið er afhent ómálað og tilbúið til litunar og olíu.

VIÐ VEKJUM ATHYGLI Á AÐ AGNES STÓLLINN PASSAR VEL VIÐ ÞETTA BORÐ

Með RÓMEO fylgja 10 sólardagar og óendanleg hamingja þeim til handa sem við borðið nýtur.

Translation missing: en.general.back_to_top