Vinsældir útieldhúsa fara vaxandi á Íslandi og JAX HANDVERK hafið samstarf við FOGHER frá Ítalíu um sölu og dreifingu á fyrsta flokkst útieldhúsum á ÍSLANDI sem standast allar árstíðir.
Hugmyndin um útieldhús snýst um að sameina alla eiginleika eldhússins innanhúss sem best. FOGHER útieldhús er ekki aðeins byggt úr ryðfríu stáli, heldur er það fyrst og fremst hugsað og hannað til að auka ánægju og gleði. Hægt er að stilla saman fjölda eininga í samræmi við þarfir hvers og eins, og að auki hægt að velja viðeigandi fylgihluti og eldunartæki til að búa til fullkomið eldhús utandyra.
Þeir sem hafa fyrir ástríðu fyrir góðum mat og vilja hafa umhverfið aðlaðandi, fá útrás fyrir ástríðuna í útieldhúsi frá FOGHER.
Hægt er að fá eldhúsin með grilli, pizzaofnum, gashellum og vöskum. Öllum einingum er raðað saman eftir óskum hvers og eins, eins og t.d. hillum og skápum. Borðplötur geta verið úr ryðfríu stáli eða steini.
Afhendingartími frá FOGHER er 2-4 vikur, eftir útfærslu. Flutningur frá Ítalíu bætist við þann tíma en er ca 10 dagar. Sérfræðingar FOGHER aðstoða við samsetningu og gefa góð ráð við skipulag og pöntun.
Upplýsingar eru veittar í 699 2000 og jax@jax.is
Smelltu hér er hægt að setja saman sitt eigið eldhús á vefsvæði FOGHER
Smelltu hér fyrir heimasíðu FOGHER
Það er ekkert eins vinarlegt og að sitja við viðareld á síðkvöldi. Búbblan passar hvar sem er og skapar skemmtilega rómantíska stemningu.
Snarkið í eldinum undirstrikar stemminguna og Búbblan rammar inn rómantíkina við að sitja úti og njóta lífsins.
Einfaldleiki í hönnun og smekkleg framsetning eru einkenni Focus, sem hafa í fjölda ára hannað og framleitt úti-eldstæði og arna fyrir heimili og hótel.
Búbblan býður upp á fjölmarga möguleika þegar kemur að skipulagningu á garðinum. Ein og sér er hún falleg á síðkvöldi, eða nokkrar saman sem ramma inn umhverfið.
Í yfir 15 ár var Christophe Ployé einn nánasti samstarfsmaður stofnanda FOCUS, Dominique Imbert
Í dag leiðir Christophe hönnunarstarf FOCUS og vinnur að því að tryggja áframhaldandi þróun og nýsköpun.
Christophe, útskrifaðist úr tæknihönnun meðfram námi í vélaverkfræði, frá European Institute of Design, Toulon í Frakklandi.
Heimasíða Focus:
Búbblan er gerð úr stáli sem er húðað með sérstöku verjandi efni sem tryggir fallegt útlit og endingu.
Búbblan er 70cm í þvermál, um 50 Kg og með tveimur sterkum gúmmíhjólum sem gerir það létt að færana til.
Sérstök "vagga" er undir viðarkubbana, sem auðveldar þrif og viðhald.
ATHUGIÐ; BÚBBLAN SKILUR EKKI EFTIR SIG FAR Á PÖLLUM EÐA STÉTTUM. HÚN ER 5MM FRÁ YFIRBORÐI AUK ÞESS SEM NÁNAST ENGINN HITI ER FYRIR NEÐAN ELD-VÖGGUNA!
Focus fékk hin virtu Þýsku hönnunarverðlaun 2022, fyrir Búbbluna. En hún þótti skara framúr fyrir nýstískulega og frumlega hönnun.
Þýska hönnunarráðið og þýska efnahags- og orkumálaráðuneytið eru í forsvari fyrir verðlaunin sem heiðra bestu verkefnin á hverju ári.
Búbblan er í ábyrgð í tvö ár frá afhendingu. Ábyrgðin nær yfir galla í hönnun, bygginga- og framleiðslugalla.
Ábyrgð tekur ekki til skemmda eftir að notkun hefur hafist eða til slysa sem skapast af notkun.
Ytra byrði er undanskilið ábyrgð.
Létt viðhald á ytra byrði gæti þurft á líftíma Búbblunnar og til að tryggja bestan árangur og skal eingöngu nota Focus málningarspray, sem fylgir.
Hér má sjá hvernig Búbblunni er viðhaldið:
Hún lætur ekki mikið yfir sér, en hún er samt um 50 kíló, 70cm í þvermál og 63 cm á hæð.
Á myndinni hér við hliðina sérðu að hún snertir ekki flötinn sem hún hvílir á því hjólin tryggja að hún haldi alltaf 5mm fjarlægð frá jörðu.
Viðarkubbarnir og eldurinn er einungis efst í vöggunni og því hitnar hún ekki að neðan.