Það er fátt betra en að sitja úti við sumarhúsið þegar kvöldsólin lækkar, loftið verður ferskara og kyrrðin tekur yfir. En íslensk sumarkvöld geta verið svöl, jafnvel þegar dagurinn hefur verið fallegur. Þá breytir góður útihitari öllu.

JAX Handverk kynnir nú glæsilega belgíska útihitara frá Heatsail, þar sem hiti, lýsing og hönnun fara saman á einstaklega fágaðan hátt. Heatsail notar þægilega far-innrauða hitatækni sem umlykur fólk mildum og notalegum hita, án þess að yfirgnæfa umhverfið. Þú velur einfaldlega mildan eða meiri hita eftir stemningunni og skapar þitt fullkomna útirými.

Þegar dagsbirtan dofnar tekur hlý og falleg lýsing við. Ljósin má nota ein og sér eða með hitanum, og stilla eftir því hvort kvöldið á að vera rólegt, rómantískt eða líflegt.

Heatsail fæst í fjölbreyttum útfærslum, litum og gerðum og hentar jafnt á pallinn, veröndina eða við sumarhúsið. Með Heatsail verður útiveran ekki bara lengri - hún verður betri.