BELLA frá JAX HANDVERK - Afgerandi og nýtískulegur

99.900 kr
VSK
Material:
Ljós fura
Lerki

BELLA stóllinn frá JAX HANDVERK gefur pallinum skemmtilegt og nýtískulegt yfirbragð.  Hann er þægilegur og sérlega meðfærilegur en samt gríðarlega sterkur og þolir allar íslenskar árstíðir.  Gert er ráð fyrir þægilegum og mjúkum sessum í bak og botn.

Stóllinn er unnin úr húsþurrkaðri ljósri og grænni furu. Tryggir langa endingu og sama og ekkert viðhald.

Stóllinn eru framleiddur eingöngu fyrir þá sem vilja eiga vandaða og handunna hluti og  er sérstaklega settur saman fyrir nýan eiganda.  Stóllinn er ekki lagervara. 

ATH: Stóllinn er afhentur ómálaður og tilbúinn til litunar og olíu.  Hann má vera úti allt árið um kring en mælt er með amk einni glærri olíuáferð á ári til að tryggja endingu.

Hægt er að fá sessur eins og sýndar eru með vatnsfráhrindandi áklæði.  Boðið er upp á þrjá mismunandi liti sem sýndir eru hér til hliðar. Verð kr. 38.400 per stól.

SMELLTU HÉR til að kaupan sessur fyrir þennan stól.

Ef þetta áklæði hentar ekki, er hægt að skoða úrval og fjölda lita hjá GÁ Húsgögnum í Ármúla 19 - www.gahusgogn.is.  ATH: Verð á sessum í öðru efni en hér kemur fram getur verið annað.

Stóllinn á myndinni er málaður með VIÐAR, hálfþekjandi viðarvörn frá Slippfélaginu, litanúmer 8000-N. ATH: Stóllinn er afhentur ómálaður og tilbúinn til litunar og olíu.

Með hverjum stól fylgja 5 sólardagar og óendanleg hamingja þeim til handa sem í honum sitja.

Translation missing: en.general.back_to_top