




Gyrofocus útieldstæði
Gyrofocus er snilldarlega vel hannað eldstæði. Það er ekki bara fallegt og sérstsakt heldur sérlega vel útfært til að veita sem mestan hita.
Hægt er að snúa eldstæðinu og beina því í þá átt sem hentar best hverju sinni svo vindur nái ekki að skemma stemminguna.
Dominique Imbert, eigandi Focus og hönnuður eldstæðanna, spurði sjálfan sig: "af hverju þurfa eldstæði að vera föst og vera á gólfi? Ég vil að mín eldstæði komi að ofan!"
Flest eldstæði frá Focus eru fest í loft með öruggum hætti og eru hreyfanleg. Það er nánast engin takmörk fyrir hvað hæð þeirra getur verið mikil. Á snilldarlegan hátt veita þau góðan yl, þar sem hans er óskað.
Til að hægt sé að gera verðtilboð þurfa að liggja fyrir teikningar af svæðinu þar sem eldstæðið á að vera, þversnið af þaki og helst myndir.
Focus eldstæði eru ekki lagervara - þau eru framleidd sérstaklega fyrir hvern og einn eftir pöntun. Ferlið getur tekið 10 til 12 vikur auk flutnings og uppsetningar.
Focus er margverðlaunað fyrirtæki sem hefur framleitt inni- og úti eldstæði í yfir 50 ár og hefur því gríðarlega þekkingu á öllu því sem tengist uppsetningu og notkun þeirra.
Ath: Hægt er að fá þessa vöru einnig til notkunnar innanhúss

Gyrofocus útieldstæði
Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur. Við munum hafa samband við þig eins fljótt og auðið er, innan 24 klukkustunda á virkum dögum.
Hafðu samband