STÓRI OG STERKI STÓLINN

139.900 kr
VSK
EFNI:
Lerki / Askur
Eik

STÓRI OG STERKI stóllinn frá JAX HANDVERK var hannaður með það í huga að vera einstaklega þægilegur útistóll. Hann er sérlega klassískur og um leið stílhreinn og fallegur í útliti. Sterkur, þungur, endingargóður og traustur og þannig þolir hann allar íslenskar árstíðir.  Hægt er að fá fótskemil fyrir þennan stól.

Stóllinn er ýmist unnin úr húsþurrkaðri ljósri furu, lerki og nú í fyrsta skipti: eik.  Hann er samsettur með sterkum ryðfríum stálskrúfum, sem tryggir langa endingu og lítið sem ekkert viðhald.

VIÐARTEGUNDIR

LERKI, er sterkt og stökt efni sem hefur mikla endingu, þyngd og styrk.  Margir velja að bera jafnvel ekkert á lerkið og leyfa því að grána.  Olía er alltaf góð fyrir við og tryggir langa endingu.  Ending lerkis er mælt í tugum ára ef því er vel viðhaldið.

EIK, er klassískur viður í húsgögn, bæði inni og úti. Gríðarlega sterkur viður en um leið mýkri en t.d. lerki. Ending Eikar er á pari við við Lerki og hefur fallega áferð.  Jafnan er talið að Eik sé það lang besta sem hægt er að hafa í húsgögnum.

Stóllinn eru framleiddur eingöngu fyrir þá sem vilja eiga vandaða og handunna hluti og hver stóll er sérstaklega settur saman fyrir nýan eiganda. Hann er ekki lagervara.

Sterki stóllinn passar vel við ÞORPARANN, sem er fallegt og sterkt útiborð frá JAX HANDVERK.

ATH: Stóllinn er afhentur ómálaður og tilbúinn til litunar og olíu.  Hann má vera úti allt árið um kring. Mælt er með amk einni glærri olíuáferð á ári til að tryggja endingu.

Hægt er að fá sessur eins og sýndar eru með vatnsfráhrindandi áklæði.  Boðið er upp á þrjá mismunandi liti sem sýndir eru hér til hliðar. Verð kr. 38.400 per stól.

SMELLTU HÉR til að kaupan sessur fyrir þennan stól.

Ef þetta áklæði hentar ekki, er hægt að skoða úrval og fjölda lita hjá GÁ Húsgögnum í Ármúla 19 - www.gahusgogn.is ATH: Verð á sessum í öðru efni en hér kemur fram getur verið annað.

Stóllinn á myndinni er málaður með svartri útimálningu frá Slippfélaginu. ATH: Stóllinn er afhentur ómálaður og tilbúinn til litunar og olíu. 

Með hverjum stól fylgja 5 sólardagar og óendanleg hamingja þeim til handa sem í honum sitja.

Translation missing: en.general.back_to_top